Jæja úff, komið rúmlega mánaðaruppsafn af bloggi, ætla bara að stikla á stóru og öll frekari smáatriði get ég bara sagt öllum þegar ég kem heim
Þýskaland og þjóðverjar:
Kom hingað í Lüneburg að kvöldi 12. september og var sótt á lestarstöðina af buddyinum mínum sem ég hef reyndar aldrei hitt aftur af því að við höfum haft Caro til að sýna okkur allt sem við þurfum að vita um. (Caro var skiptinemi á Bifröst í fyrra og býr hérna) Buddyinn minn fylgdi mér í íbúðina okkar Magga, í Spangenbergstr. 29, sem er mjög fín, sérstaklega mitt herbergi
Þetta er t.d. mynd af rúmminu mínu
En fleiri myndir af íbúðinni má finna í myndunum mínum. Albúmið heiti: Þýskaland 2

Maggi mætti svo 2 dögum seinna og Gerður 4 dögum seinna.
Þessi bær sem við búum í er rosalega krúttlegur og íbúðin okkar vel staðsett, tökum strætó í skólann en getum labbað heim af djamminu og þar með sparað okkur mikinn leigubílakostnað!
Þjóðverjar eru hins vegar með því allra hallærislegra fólki sem hægt er að ýminda sér! Ætla að fara við tækifæri niður í bæ og taka flassið af myndavélinni minni og taka laumumyndir af sumu af þessu liði
Fötin og hárgreiðslunar!! Ó my god sko! Reyndar er flest skólafólkið hérna frekar venjulegt en svo hinn almenni borgari er gjörsamlega hræðilegur!! T.d. mjög algengt að sjá eldir konur hálf snoðaðar og með blátt eða grænt hár... Come on! En á hinn boginn þá er fólk hérna alveg ótrúlega hjálpsamt, þ.e.a.s. þeir sem skilja ensku..
Skólinn og skiptinemarnir:
Byrjuðum fljótlega eftir að við komum í 3ja vikna þýskunámskeiði, gekk ágætlega en erum samt langt frá því að tala e-ð hérna.. náðum samt prófinu
Skólinn sjálfur byrjaði bara í síðustu viku en við Maggi erum voðalega lítið í skólanum, 2 daga í viku í einu faginu og hin tvö fögin eru “seminars” sem þýðir að þau eru próflaus og bara kennd þrisvar sinnum yfir alla önnina en í staðin þurfum við að skrifa einhverjar ofurritgerðir og halda langa kynningu.. Erum svo líka í 2 utanskólalögfræðifögum þannig að það er alveg nóg að gera hjá okkur í bili.
Það eru rosalega margir skiptinemar hérna en þeir sem við höfum kynnst lang best eru 4 krakkar frá Írlandi, kannski af því að “djamm” mennig okkar og þeirra er mjög svipuð
Ferðalög:
Fyrsta alvöru ferðalagið okkar var til München til að fara á OktoberfestJ Sú helgi var rosaleg!! Þvílíkt bjórmagn vissi ég ekki að væri hægt að innbyrgða.. úff! En við leigðum okkur bíl, ég, Maggi, Gerður, Caro og Andri. Keyrðum á fimmtudeginum og það tók okkur ca. 9 tíma og það merkilegasta sem okkur fannst við þá keyrslu var að sjá húsbíla sem voru lagðir úti í kannti með rauðum ljósum í rúðunni hehe, sem sagt hórubílar!

Vorum svo “heppin” að vera komin með gistingu hjá vinkonu Caro í litlum bæ rétt við München en málið er að sú stelpa vinnur á geðveikrahæli og býr líka þar.. Þannig að við eyddum helginni inni á rammafgirtu svæði með rimlum fyrir gluggum og umkringd af hættulegustu glæpamönnum Þýskalands og það besta er að Maggi og Andri þurftu að sofa í bílnum því að það var ekki pláss fyrir okkur öll inni. En það reddaðist nú alveg fyrst að enginn strauk eða neitt þessa helgi
Festivalið var samt alveg geðveikt, fullt af svakalegum tívolítækjum og stórum björtjöldum þar sem fólk var ofurölvi frá 9 á morgnana og til miðnættis
Heimleiðin var hins vegar ekki svo góð, allir í frekar vafasömu ástandi og brjálaðar umferðarteppur! Vorum ca. 11 tíma á leiðinni heim
Næsta alvöru ferð var svo síðustu helgi þegar við skelltum okkur í fyrstu utanlandsferðina okkar til Aarhusa í Danmörku. Þar fór Maggi á hálfgert ættarmót þar sem 2 systkini hans voru þar og frænka og fleiri en við Gerður dunduðum okkur meira við að skoða í búðir og svo var náttúrulega kíkkað út bæði kvöldin. Fínt að fá að kíkja svona aðeins í framtíðarbæinn sinn
Svo erum við náttúrlulega búin að kíkka nokkrum sinnum í Hamburg, sem er 25 mín. í burtu. Aðalferðirnar voru þegar við fórum við með bróður Magga og frú, sem komu og gistu hjá okkur eina nótt og svo þegar við fórum fyrir ca. 2 vikum í verslunarferð
Keypti mér t.d. langþráðan iPod! Þegar verslunum lokaði síðan hittum við írana og horfðum á fótboltaleik með þeim, Írland-Þýskaland. Eftir leikinn var svo haldið í rauða hverfið og kíkt á nokkra vafasama staði með fáklæddu kvennfólki.. Reyndar ekki ég þar sem ég fór heim í samfloti við nokkra um miðnætti. Svona er ég þæg og góð hérna
Nei nei, ég var ako að fara að læra undir próf daginn eftir + að ég átti erfitt með gang þar sem ég hafði lent í smá hjólaslysi kvöldið áður og var með mjög bólginn og marinn ökla
Æi vá hvað ég nenni ekki að skrifa meira.. Ef ég man eftir einhverju stórmerkilegu þá hendi ég því inn en ég vil líka minna á að hann Maggi sambýlingur er með bloggsíðu og hefur verið mun duglegri að henda inn færslum og myndum. www.bardal.bloggar.is